Ógleymanleg hópaferð á fjórhjólum
Starfsmannaferðir, hópefli, óvissuferðir, steggjanir og gæsjanir. Við skipuleggjum ferð sem hentar hópnum.
Fjórhjól þjappa hópnum saman
Hvort sem tilefnið er starfsmannadagur, árshátíð, hópefli, steggjun eða gæsun, þá er fjórhjólaferð góð leið til að gera daginn eftirminnilegan.
01
Starfsmannaferðir & starfsmannadagur
Brjótið upp hversdaginn með ferð úti í náttúrunni. Við sjáum um skipulagningu, búnað og leiðsögn, þannig að hópurinn getur einbeitt sér að ferðinni. Ferðirnar henta hópum af ólíkri stærð og með mismikla reynslu.
Fá tilboð →
02
Hópefli
Sameiginleg áskorun úti í náttúrunni styrkir tengslin í hópnum. Allir fara sömu leið, takast á við sömu áskoranir og eiga síðan sameiginlegar sögur úr ferðinni.
Fá tilboð →
03
Steggjanir & gæsjanir
Byrjið daginn eða kvöldið á fjórhjólaferð. Hún er skemmtilegt upphaf áður en haldið er áfram í kvöldverð eða aðra dagskrá, og minningarnar fylgja hópnum lengi.
Fá tilboð →
04
Óvissuferð
Komdu hópnum á óvart með fjórhjólaferð. Við sjáum um skipulagningu og leiðsögn, svo þú getur notið þess þegar óvænta dagskráin kemur í ljós. Hentar vel fyrir afmæli, starfsmannadaga og önnur tilefni.
Fá tilboð →Sendu okkur fyrirspurn
Segðu okkur frá fjölda þátttakenda, tilefni og dagsetningu og við sendum tilboð sem hentar hópnum. Við svörum yfirleitt samdægurs.